Wednesday, February 11, 2009

Septemberferð til Marokkó


Atlasfjallgarðurinn liggur eftir suðausturhluta landsins.

Þessi ferð 5.-16.september, HúN ER FULLSKIPUÐ

Frá Fez, þeim magnaða stað

En meðal þeirra staða sem við mundum sækja heim er auðvitað Marakech, lítil berbaþorp, Fez og vitanlega er farið yfir Atlasfjöllin sem eru tignarleg og þar eru álfar og tröll í hverjum steini


Sætindi og te náttúrlega í boði.

Marokkó er einstakt land að fegurð og íbúar gestrisnir og vinsamlegir

FERÐALÝSING

1.dagur Flogið árla morguns til Amsterdam og áfram til Casablanca með Royal Air Maroc. Komum um kl 16 og á leið til hótels og hvíldar rúllum við í gegnum borgina,
skoðum Torg Sameinuðu þjóðanna, mosku Hassans sáluga II sem lengi ríkti í landinu og er einstaklega falleg. Gist í Casablanca


2.dagur. Morgunverður
Leggjum af stað til FES en komum við í höfuðborginni Rabat og kíkjum á ýmsa merka staði þar. Við komuna til Fez er tjekkað inn á hótelinu okkar, snætt þar

3. dagur. Morgunverður

Byggð hefur verið í Fez síðan á 8.öld og er miðstöð trúarlíf og andans manna í landinu. Við förum í gömlu Fez sem er einstök með alla sína krákustíga og frábæran markað, vinnustofur listamanna, vefnaðarlitun sem er mikill atvinnuvegur.Ilmur af kryddi og einstakri sögu hvarvetna Við förum líka um nýju Fez og horfum á Konungshðöllina (væntanlega aðeins utanfrá) því kóngar í Marokkó búa ansi vel og eiga hallir í öllum keisaraborgunum fjórum, Rabat, Meknes, Fes og Marrakech.
Gist í Fez

4.dagur Morgunverður Frjáls dagur í FEZ

5.dagur
Lagt af stað frá Fez og stoppað í litlum fallegum þorpum. Þennan dag er lengsta keyrslan í ferðinni. Gerum góðan stans í Sefrou sem ferðamenn vitja sjaldan. Þar eru grafnir nokkrir helstu gyðingaleiðtogar frá fyrri tímum. Gamli borgarhlutinn með sínum hvítu veggjum umlykur hana og áin Aggai skiptir gömlu borginni. Einstaklega fallegar hannyrðir til sölu á viðráðanlegu verði(eftir prútt náttúrlega)Á leiðinni er farið um hluta Atlasfjalla en síðar í ferðinni er þó enn tilkomumeiri ferð í fjöllunum.

Komum til Ifrane sem sagan segir að hafi verið höfuðstaður konungsríkis gyðinga í fjarlægri fortíð. Ifrane er einkum sóttur heim af gyðingum sem vitja þar helgra staða. Síðan höldum við áfram til Merzouga. Borðum berbískan kvöldverð á Auberge Timbúktú og erum nú komin út í eyðimörkina.

6.dagur Morgunverður
Frjáls dagur í Merzouga og menn geta setið við sundlaugina eða farið í þorpin umhverfis, svo sem til Riussani þar sem er afrískastur markaður í landinu.
Gist á Auberge Timbúktú

Síðdegis gefst kostur á ferð út í eyðimörkina á úlföldum, kveiktur eldur og fluttir marokkanskir og berbiskir söngvar. Kvöldverður Gist í tjöldum. Þetta kostar 100 dollara og er eftir vali hvers og eins

7. DAGUR
Morgunverður
Frá Merzouga höldum við til Todra þar sem fjallalandslag, skorið giljum tekur við af eyðimörkinni. Við gistum í Tinerhir og öndum að okkur friðsæld og fjallanna kyrrð.

8.dagur Morgunverður
Nú er stefnt til Oartzasate og blasa Atlasfjöllin hvarvetna við. Komum til Tilit og eru þar merkar minjar búsetu gyðinga á þessum slóðum og múrinn umhverfis er á heimsminjaská UNESCO. Við komuna til Oartzazate tjekkum við okkur inn.

9.dagur Morgunverður
Stórkostleg ferð um Atlasfjöllin yfir til Marakech og skoðum margt stórbrotið á leiðini auk tröllanna í fjöllunum. Við förum um Tizi-n Tiecha skarðið og skoðum ótrúlega merka staði sem sumir eru á heimsminjaskrá. Hádegisverður í Ait Benhaddou Kasbah.
Þegar til Marrakech kemur förum við í skoðunarferð um þessa "Rauðu borg". Marakech var fyrrum höfumborg landsins, iðandi af lífi og fjöri og stórkostlegum byggingum, m.a. einni kóngshöllinni enn. Gist í Marrakech

10.dagur Frjáls dagur í Marakech og er þá ráð að skoða betur Perlu suðursins eins og Marokkomenn kalla hana. Fara á torgið fræga þar sem galdramenn leika listir og spákonur lesa í framtíðina, sögumenn þylja ljóð, snákatemjarar sýna konstir og svo framvegis. Skoða byggingar eða rölta um og horfa á einstakt mannlífið í borginni. Um kvöldið borðað utan hótelsins. Gist í Marakech

11.dagur
Morgunverður. Framyfir hádegi er frjáls tími en þá leggjum við af stað til Casablanca. Borðum kveðjukvöldverð saman

12.dagur Morgunverður
Brottför til London og eftir nokkra bið síðan áfram til Keflavíkur


Bráðabirgðaverð- athugið með öllum fyrirvara- er 370 þúsund

INNIFALIÐ
Flug, allir skattar,
Allur akstur sem upp er talinn í áætlun
Gist á 4ra stjörnu hótelum (eina nótt í tjöldum, þeir sem svo kjósa).
Verð er miðað við tvo í herbergi
Máltíðir nema hádegisverður á tveimur frjálsum dögum í Marrakech og Fez
Aðgangseyrir á alla þá staði sem eru taldir upp í áætlun
Vatn, te og kaffi á keyrslu eða þegar stoppað er
Íslensk fararstjórn


EKKI innifalið

Drykkir, óáfengir sem áfengir
Úlfaldaferð í Merzouga og matur, tónlist og gisting í eyðimörkinni. Kostar 100 dollara
Tips til innlendra leiðsögumanna 120 dollarar á mann Ég innheimti það einhvern fyrstu dagana og sé um að gera upp við þá
Tryggingar verða menn að annast sjálfir

Verð fyrir eins manns herbergi $300(greiðist í íslenskum krónum), borgist með síðustu greiðslu og beðið er um að menn borgi skv. greiðsluplani sem allir hafa fengið. Niðurstaða mín var að skipta um hótel í Marrakech, ákveða að við verðum á jeppum en ekki í rútu nema þegar við komum og förum. Það skal tekið fram að hótelin eru prýðisgóð og raunar eru gististaðirnir í Oarzazate, í Merzuga og Tinerhir sérstaklega fallegir.

Hér er þá áætlunin komin,eilítið breytt eftir rannsóknarferð mína á dögunum. Þetta er í senn menningar og skemmtiferð og fegurð Marokkó og vinsemd íbúa er einstök. Um það verður ekki ýkt.